Stígvéla sokkar eða bara kósý sokkar

Stígvéla sokkar eða bara kósý sokkar

Það er ekkert verra en að vera kalt á fótum hvort sem maður stendur á ísköldu gólfi í vinnslusal fiskverkunar, úti í á, eða bara heima í stofu. Þessir flottu ullar sokkar eru blandaðir tyrkneskri bómull og eru þess vegna dásamlega mjúkir og hlýir. Það skemmtilega við litinn á sokkunum er að græni liturinn er eins og íslenski mosinn, en blái liturinn er eins og bláskelin sem finnst við strendur íslands. Góð gjöf handa vinum erlendis.

 

 

 

 

Aftur á bloggið

Skildu eftir athugasemd

Vinsamlegast athugið að athugasemdir þurfa að fá samþykki áður en þær eru birtar.